Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 19. júní 2013 22:47
Ívan Guðjón Baldursson
Newell's Old Boys argentínskir meistarar
Newell's Old Boys unnu sinn fyrsta Argentínumeistaratitil síðustu níu ár þökk sé sigri Estudiantes gegn Lanus sem var í toppbaráttunni við Old Boys.

Old Boys féllu næstum því úr efstu deild í Argentínu á síðasta tímabili en koma Gerardo Martino í þjálfarastöðu félagsins breytti öllu og tókst liðinu að sigra deildina.

Þetta er sjötti deildartitill Old Boys og skoraði liðið 40 mörk í 18 leikjum, þar sem tólf leikjum lauk með sigri.

Liðið er í undanúrslitum í Suður-Ameríku bikarnum sem er eins konar Meistaradeild. Þar mætir Newell's Old Boys sterku liði Atletico Mineiro sem er með Ronaldinho innanborðs.
Slapp
banner
banner