Var fyrsti kostur á undan Söderlund
Norska úrvalsdeildarliðið Rosenborg falaðist eftir kröftum Björns Bergmanns Sigurðarsonar eftir að ljóst var að félagið myndi missa sóknarmanninn Tarik Elyounoussi til Hoffenheim í Þýskalandi.
Elyounoussi skrifaði á mánudaginn undir fjögurra ára samning við Hoffenheim en þýska liðið borgaði rúmar 420 milljónir króna fyrir leikmanninn.
Samkvæmt heimildum Fótbolti.net var mikill áhugi á því innan herbúða Rosenborgar að klófesta Björn þegar ljóst þótti að Elyounoussi myndi hverfa á braut og mun félagið hafa átt í óformlegum viðræðum við forráðamenn Wolves um kaup á leikmanninum í síðustu viku.
Forráðamenn Wolves sýndu því hins vegar lítinn áhuga að selja Björn enda líta þeir á hann sem lykilmann í framtíðaráætlunum félagsins.
Rosenborg viðist í kjölfarið hafa snúið sér að Alexander Söderlund, fyrrum framherja Íslandsmeistara FH, en tilkynnt var um félagaskipti hans til Rosenborgar frá Haugesund í vikunni.
Kaupverðið er talið nema rúmum 130 milljónum króna en ljóst er að Björn Bergmann hefði verið nokkuð dýrari kostur.
Björn er undir smásjá ýmissa liða en frammistaða hans með Wolves á síðasta keppnstímabili vakti töluverða athygli þrátt fyrir að hann hafi sjaldan fengið að spila í sinni óskastöðu fremst á vellinum.
Wolves féll sem kunnugt er niður í ensku 2. deildina í vor og ætla forráðamenn félagsins að staldra þar stutt við. Nýr knattspyrnustjóri, Kenny Jackett, var ráðinn til félagsins fyrir stuttu og hann á að koma liðinu upp um deild strax næsta vor.




