Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 10:30
Fótbolti.net
Rúnar Kristins: Þurfti ekki meira en malarvöll
Rúnar Kristinsson æfði með Leikni þegar hann byrjaði að stunda fótbolta í Breiðholtinu.
Rúnar Kristinsson æfði með Leikni þegar hann byrjaði að stunda fótbolta í Breiðholtinu.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Rúnar fyrir bikarleik KR gegn KB fyrir nokkrum árum.
Rúnar fyrir bikarleik KR gegn KB fyrir nokkrum árum.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Í kvöld klukkan 19:15 mætast Leiknir og KR í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í Breiðholtinu. Viðtalið hér að neðan er fengið úr leikskrá sem Leiknir gefur út fyrir leikinn.

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, hóf sinn fótboltaferil hjá Leikni áður en hann hélt í KR. Þar á eftir tók við farsæll atvinnumannaferill og 104 landsleikir fyrir hönd þjóðarinnar áður en skórnir fóru á hilluna og þjálfaraferillinn tók við.

Aðstæður á félagssvæði Leiknis voru allt aðrar en þær eru í dag þegar Rúnar steig sín fyrstu spor á fótboltavellinum í Breiðholti.

„Þegar ég var nýfluttur í Breiðholt byrjaði ég að æfa hjá Leikni með félögum mínum í sex ára bekk. Það var malarvöllur og meira þurfti ekki. Svo voru skólavellirnir úti við Fellaskóla. Þegar maður var gutti skiptu aðstæðurnar ekki miklu máli, maður fór bara þar sem var pláss og byrjaði að sparka," segir Rúnar sem skipti svo í KR fyrir sumarið 1983, á eldra ári í 4. flokki. „Við vorum fjórir saman félagarnir úr Breiðholtinu sem fórum yfir í KR."

Vita út í hvað þeir eru að fara
Það má finna fullt af tengingum milli Leiknis og KR sem krydda þennan bikarleik vafalítið.

„Það eru ýmsar tengingar sem má finna og svo hafa verið bikarleikir milli liðanna. KB-leikurinn undir stjórn Loga er eftirminnilegur. Fyrir minn tíma hér mættust Leiknir og KR í bikarslag í Breiðholtinu en ég bjó erlendis þá. Liðin hafa margoft mæst í Reykjavíkurmóti gegnum tíðina en það eru leikir á undirbúningstímabilinu og ekki eins alvarlegir og þessi er," segir Rúnar.

„Leiknir hefur náð að sanna sig sem gott 1. deildarlið og var nálægt því að fara upp í Pepsi-deildina fyrir þremur árum. Við vitum nákvæmlega hvað þetta Leiknislið getur og við þurfum bara að vera klárir. Liðið hefur ekki fengið mörg mörk á sig í deildinni og ég tel að það þurfi ekkert að mótivera mína menn sérstaklega. Þeir vita út í hvað þeir eru að fara."

Leiknisliðið hefur ekki verið þekkt sem mikið bikarlið en Rúnar þekkir það vel hversu skemmtilegt það er að fara langt í bikarnum.

„Það er gríðarlega skemmtilegt. Það er gaman að taka þátt í þessari keppni og ekki á vísan að róa. Bikarkeppnin hefur sinn sjarma og oft reynist það erfitt fyrir liðin í efstu deild að fara í gegnum lið í neðri deild. Þetta er bara einn stakur leikur, bara einn sigurvegari og allt lagt undir hjá báðum liðum. Sálfræðilega hefur liðið sem er neðar engu að tapa, allt að vinna. Þegar leikur hefst eru þetta 22 menn byrjaðir að hlaupa og berjast."

Leiknir er fjölbreytt lið
Rúnar býst ekki við því að Leiknir pakki í vörn í leiknum. „Það hugsa ég ekki. Þeir eru vel skipulagðir varnarlega og geta sótt hratt. Þetta er lið sem getur líka haldið bolta og stjórnað leik. Þetta er mjög fjölbreytt lið sem býður upp á ýmsa möguleika og hefur hæfileikaríka og duglega leikmenn sem þjálfararnir geta stillt upp í hvaða leikkerfi sem er. Það er því ekki auðvelt að lesa í hvað þeir ætla að gera gegn okkur og við verðum að vera tilbúnir í hvað sem er," segir Rúnar Kristinsson.
Slapp
banner
banner