Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 11:59
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Sunderland reynir að fá Vydra
Sunderland er að reyna að fá framherjann knáa Matej Vydra á láni frá Udinese.

Vydra var í láni hjá Watford á síðasta tímabili þar sem hann fór á kostum.

Vydra skoraði 22 mörk og var valinn leikmaður tímabilsins í ensku Championship deildinni.

Talið er að Udinese vilji fá átta milljónir punda fyrir Tékkann en Paolo Di Canio vill fá leikmanninn á láni til Sunderland.

,,Það er satt að Sunderland hefur áhuga en þeir vilja einungis fá hann á láni í augnablikinu. Þeir vilja ekki eyða pening," saðgi Ondrej Chovanec umboðsmaður Vydra.
Slapp
banner
banner