Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mið 19. júní 2013 10:15
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Thiago til Manchester United?
Powerade
Þá er komið að helsta slúðrinu úr enska boltanum í dag. BBC tók saman.



Manchester United er í bílstjórasætinu í baráttunni um Thiago Alcantara miðjumann Barcelona en hann kostar 15 milljónir punda. Thiago skoraði þrennu fyrir Spánverja í úrslitaleik EM U21 árs landsliða í gær. (The Sun)

Barcelona ætlar að reyna að fá Juan Mata frá Chelsea á 30 milljónir punda. (Daily Mirror)

Edinson Cavani, framherji Napoli, ætlar að hafna Manchester City og ganga til liðs við Real Madrid á 55 milljónir punda. (Daily Star)

Liverpool á í viðræðum við Porto um kaup á kantmanninum Christian Atsu. (Guardian)

Liverpool mun einnig kaupa Luis Alberto frá Sevilla á sex milljónir punda á morgun. (Independent)

Andy Carroll mun kosta West Ham allt að 19 milljónir punda og með launapakka hans næstu sex árin gæti hann kostað samtals 55 milljónir punda. (The Sun)

Fulham vonast til að fá Andre Wisdom varnarmann Liverpool á láni á næsta tímabili. (Daily Mirror)

Aston Villa ætlar að reyna að selja Darren Bent á átta milljónir punda. (Daily Mail)

Crystal Palace, Swansea, Fulham og Norwich hafa öll boðið tvær milljónir punda í Nathan Redmond leikmann Birmingham. (Daily Mirror)

Everton er í viðræðum við Granada um kaup á brasilíska vinstri bakverðinum Guilherme Siqueira. (Daily Mail)

Alan Pardew, stjóri Newcastle, vill fá á hreint hvaða hlutverk Joe Kinnear á að hafa hjá félaginu. (Daily Telegraph)

Michael Appleton, fyrrum stjóri Blackburn og Blackpool, er líklegastur til að taka við enska U21 árs landsliðinu. (Daily Star)

Gareth Southgate kemur einnig til greina í starfið. (Guardian)

Real Madrid hefur ákveðið að geyma treyju 11 ef Gareth Bale kemur til félagsins. (Daily Mirror)
Slapp
banner
banner