Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 22:45
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða ÍA 
Þorvaldur Örlygs: Virkilega spennandi tækifæri
Dean Martin, Þorvaldur Örlygsson, Jón Þór Hauksson.
Dean Martin, Þorvaldur Örlygsson, Jón Þór Hauksson.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Mynd: Heimasíða ÍA
„Ég get ekki sagt annað en að þetta leggist bara virkilega vel í mig," sagði Þorvaldur Örlygsson við heimasíðu ÍA í kvöld en hann var ráðinn þjálfari liðsins í dag. Þorvaldur tekur við starfinu af Þórði Þórðarsyni sem ákvað að hætta störfum í fyrradag.

,,Þetta bar auðvitað brátt að eftir að Þórður Þórðarson ákvað að stíga til hliðar sem mér fannst reyndar leitt að heyra enda hafði Þórður unnið gott starf bæði sem leikmaður og þjálfari fyrir ÍA. Ég þekki auðvitað Þórð sjálfur frá mínum tíma með KA, en hann lék þar undir minni stjórn og stóð sig þar virkilega vel í markinu. En það skiptast á skin og skúrir í þessu og öðru og hlutirnir geta verið fljótir að breytast í boltanum.“

„Ég var í rauninni bara í fríi fyrir norðan þegar ég fékk símtal frá Þórði Guðjóns þar sem hann viðraði þessa hugmynd við mig um að taka við Skagaliðinu. Mér fannst það strax spennandi kostur en í kjölfarið hitti ég Þórð, Inga Fannar formann KFÍA og Örn Gunnars stjórnarmann þar sem við fórum betur yfir málin. Eftir þann fund og stuttan umhugsunartíma í gærkvöld var þetta aldrei spurning í mínum huga."

,,Skaginn er klúbbur sem býr yfir mikilli hefð og sögu og ég held að flestir fótboltaþjálfarar á Íslandi geti verið sammála um að það sé virkilega spennandi tækifæri að fá að taka við Skagaliðinu. Ég er því bara virkilega ánægður með að hafa fengið það tækifæri og hlakka til tímanna sem framundan eru enda er allt vinnuumhverfi og aðstaða til mikillar fyrirmyndar hér í fótboltabænum á Akranesi.“


Í dag var haldinn stuttur fundur með leikmönnum þar sem Þorvaldur var kynntur til sögunnar. Hann mun horfa á leik liðsins gegn Breiðabliki í Borgunarbikarnum á morgun en fyrsti leikurinn sem hann stýrir verður gegn Keflavík á mánudag.

„Við héldum stuttan fund með leikmönnum í dag en ég var svo sem ekkert að flytja langa ræðu sjálfur enda drengirnir á fullu í undirbúningi fyrir leikinn á morgun gegn Blikum. Drengirnir eru í góðum höndum hjá þeim Dean Martin og Jón Þór Haukssyni sem munu stýra liðinu í þeim leik en ég verð þeim þó innan handar ef á þarf að halda. Leikmennirnir voru annars bara vel innstilltir á bikar-verkefnið og ég er sannfærður um að við náum góðum úrslitum á morgun.“

„Ég þekki auðvitað til margra þessara leikmanna hjá Skagaliðinu en hópurinn hefur verið í góðu jafnvægi þó svo að stigin hafi kannski ekki alveg verið að detta inn í Pepsi-deildinni. Mannskapurinn er í góðu ásigkomulagi og allt eru þetta drengir sem vilja ná langt í fótbolta. Ég hef trú á því að drengirnir leggi sig alla fram í verkefnin sem framundan eru og ef það tekst þá fara stigin að tikka inn – ég hef enga trú á öðru," sagði Þorvaldur Örlygsson að lokum í samtali við vefsíðu knattspyrnufélagsins ÍA.
Slapp
banner
banner
banner