Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 19. júní 2013 11:00
Fótbolti.net
Vigfús Arnar: Gaman að máta sig við KR
Vigfús Arnar er einn reyndasti leikmaður Leiknis.
Vigfús Arnar er einn reyndasti leikmaður Leiknis.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir varð Reykjavíkurmeistari í vor eftir sigur gegn KR í úrslitaleik.
Leiknir varð Reykjavíkurmeistari í vor eftir sigur gegn KR í úrslitaleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld klukkan 19:15 mætast Leiknir og KR í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í Breiðholtinu. Viðtalið hér að neðan er fengið úr leikskrá sem Leiknir gefur út fyrir leikinn.

Vigfús Arnar Jósepsson leikmaður Leiknis lék um tíma með KR og mætir því sínu fyrrum félagi á Leiknisvellinum í kvöld.

„Þetta verður mjög skemmtilegt verkefni. KR er stærsta félag landsins og liðið þeirra er virkilega gott, það verður gaman að máta sig við þá. Kannski fara KR-ingar að tala um Leiknisgrýluna, eftir að við unnum þá í úrslitum Reykjavíkurmótsins fyrr í vetur og núna sláum þá út í bikarnum," segir Vigfús sem er uppalinn hjá Leikni.

„Ég fór 1999 yfir í KR, var þá í þriðja flokki og var þar til ársins 2007. Ég átti að mestu mjög góða tíma hjá KR, þar bætti ég leik minn heilmikið og fékk að æfa með frábærum leikmönnum undir handleiðslu góðra þjálfara.. Á þessum tíma náði ég að spila fyrir U-17 og U-19 landslið Íslands og keppa úrslitaleiki í stærstu mótum landsins í þessum árgöngum."

Spilaði bikarúrslitaleik með KR
Árið 2004 var fyrsta meistaraflokksár Vigfúsar hjá KR en flest tækifæri fékk hann 2006 þegar Teitur Þórðarson var með liðið.

„Tímabilið endaði ágætlega eftir slæma byrjun en við enduðum í 2. sæti í deild og bikar. Fékk ég að spila bikarúrslitaleik sem tapaðist reyndar en það var frábær reynsla. Við æfðum átta til níu sinnum í viku allan veturinn þar sem hinar margfrægu morgunæfingar klukkan sjö voru þrisvar í viku," segir Vigfús.

„Árið 2007 var síðasta ár mitt hjá KR og það voru gerðar miklar væntingar til liðsins, ég var meiddur stóran hluta af vetrinum og átti erfitt með að vinna mér sæti í liðinu. Ég ákvað seinnipart sumars að fá að spila meira og skipti alfarið yfir í Leikni."

Ef Vigfús mætti fá einn leikmann KR yfir í Leiknisliðið, hver yrði fyrir valinu?

„Ég myndi ekki vilja skipta á neinum leikmanni KR fyrir leikmann Leiknis en til að auka breidd hópsins þá er alltaf gaman að fá gamla Leiknismenn heim, ég myndi því vilja fá Hannes aftur til liðs við okkur. Síðan ætlaði Rúnar að ljúka leikmannaferlinum hjá okkur og við þurfum að láta hann efna það," segir Vigfús Arnar.
Slapp
banner