„Ég er mikill Keflvíkingur"
„Þegar við byrjuðum þetta starf var talað um að fara í uppbyggingu en svo urðu menn óþolinmóðir," segir Zoran Ljubicic en á stjórnarfundi Keflavíkur í gær var tekin ákvörðun um að segja honum upp.
„Auðvitað ber ég ábyrgð, það er auðveldast í þessari stöðu að reka þjálfarann. Ég átti gott samstarf með formanninum en það er ekki bara hann sem ræður. Annars vil ég ekki búa til nein leiðindi. Ég er mikill Keflvíkingur og óska þeim alls hins besta og vona að þeir nái að komast ofar í deildinni."
Hef gert mitt besta
Zoran er sannfærður um að hann hefði getað rétt gengi liðsins við hefði hann fengið meiri tíma.
„Auðvitað er ég það. Það hefur verið stígandi í okkar leik. Það vissu allir að þetta yrði erfitt og liðinu var spáð neðarlega. Ég hef gert mitt besta, einhverstaðar hef ég gert mistök en liðið var að spila ágætlega í nánast öllum leikjum og margt jákvætt í gangi," segir Zoran.
„Heppnin hefur ekki verið með okkur. Þetta hefur verið stöngin út. Þar að auki hefur spjaldasöfnunin ekki hjálpað okkur. Hún hefur haft sín áhrif. En svona er bara staða þjálfarans, það er óöruggi og menn verða að vera tilbúnir undir allt. Það er hluti af starfinu."
Zoran segist ganga stoltur frá starfinu og er opinn fyrir öllum þjálfaratilboðum sem berast. „Ég gaf mörgum ungum mönnum tækifæri en þolinmæðin var minni en ég bjóst við," segir Zoran Ljubicic.


