Keflvíkingar hafa sagt þjálfaranum Zoran Daníel Ljubicic upp vegna lélegs árangurs liðsins í upphafi Íslandsmóts.
Keflavík er með fjögur stig að loknum sjö umferðum, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Keflavík er með fjögur stig að loknum sjö umferðum, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Tilkynning frá Knattspyrnudeild Keflavíkur sem birtist á vef Víkurfrétta:
Knattspyrnudeild Keflavíkur og Zoran Daníel Ljubicic hafa komist að samkomulagi um að Zoran stígi frá sem aðalþjálfari Keflavíkur .
Zoran tók við liðinu haustið 2011 og stýrði liðinu í 9. sæti árð 2012, árangurinn í ár hefur ekki staðist væntingar og þess vegna er farið í þessa erfiðu ákvörðun að slíta samstarfinu.
Zoran er gegnheill Keflvíkingur og hefur hann lagt mikla vinnu á sig fyrir félagið, en hann hefur þjálfað alla flokka hjá Keflavík.
Knattspyrnudeildin vill þakka honum fyrir hans störf með mfl. karla undanfarin tvö ár og óskar honum velgengi á komandi árum.


