Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 19. júní 2017 13:09
Elvar Geir Magnússon
Möguleiki á að Viðar Örn mæti með Maccabi á KR-völlinn
Kemur Viðar heim til Íslands með Maccabi?
Kemur Viðar heim til Íslands með Maccabi?
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Líkur eru á að Viðar Örn Kjartansson og félagar í ísraelska liðinu Maccabi Tel Aviv muni mæta KR í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.

Dregið var í morgun og mun KR etja kappi við finnskt lið eins og greint hefur verið frá.

Viðar og félagar eiga leik gegn Tirana frá Albaníu í fyrstu umferð, einvígi sem liðið ætti að klára.

Ef það tekst mun Maccabi leika við sigurvegarann úr viðureign KR og finna liðsins SJK Seinäjoki í 2. umferð.

Það væri hressandi að fá Viðar á KR-völlinn í sumar en hann var markahæsti leikmaður ísraelsku deildarinnar á liðnu tímabili. Viðar hefur skorað eitt mark í fjórtán landsleikjum en hann var ekki valinn í síðasta hóp sem mætti Króatíu.

Ef Valur klárar lettneska liðið Ventspils verður sigurvegarinn úr viðureign Domzale frá Slóveníu og Flora Tallinn frá Eistlandi næsti mótherju. Ef Stjarnan klárar Shamrock Rovers mætir liðið Mlada Boleslav frá Tékklandi í næstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner