Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   mán 19. júní 2017 22:34
Elvar Geir Magnússon
Willum: Stigasöfnunin svekkjandi fyrir alla KR-inga
Willum Þór Þórsson.
Willum Þór Þórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jafntefli varð niðurstaðan í leik KR og Breiðabliks þar sem KR skoraði í blálok leiksins. Það er með hreinum ólíkindum að mörkin urðu ekki fleiri en markið í lokin kom í veg fyrir að KR yrði í fallsæti eftir umferðina.

Lestu um leikinn: KR 1 -  1 Breiðablik

„Við klúðruðum urmul af færum. Við áttum að klára færin og vinna þennan leik en úr því sem komið var þá var betra að fá eitt stig en ekkert," segir Willum Þór Þórsson, þjálfari KR.

„Ég ætla að hrósa leikmönnum og liðinu. Maður verður pirraður þegar færin eru ekki að nýtast en liðið hélt áfram. Liðið nær í punkt á lokamínútunum og sýnir skapstyrk sem hægt er að byggja á."

Indriði Sigurðsson var á bekknum hjá KR.

„Hann er með brjósklos og það er stutt á milli leikja. Meiningin var að létta á honum. Indriði var sem sannur fyrirliði með okkur í dag, hvatti liðið og var til taks ef á þyrfti að halda."

KR er með átta stig og stigasöfnunin alls ekki verið eftir væntingum.

„Hún er langt frá því sem ég var að vonast til. Ég hef svo mikla trú á þessu liði. Við erum með frábært fótboltalið. Þetta er ekki nálægt væntingum og svekkjandi fyrir alla KR-inga. Maður getur ekki verið að velta sér upp úr því. Við þurfum að vinna vel með liðið svo menn haldi trúnni."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner