Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   þri 19. júní 2018 20:32
Arnar Helgi Magnússon
Alfreð: Við ætluðum að loka á Mayorinn
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari Selfyssinga var temmilega sáttur með stigið sem liðið fékk gegn toppliði ÞÓR/KA í Pepsi deildinni. Gestirnir frá Akureyri fengu urmul af góðum færum en náðu ekki að nýta sér það og koma boltanum í netið. Alfreð var ánægður með varnarleikinn í kvöld.

Lestu um leikinn: Selfoss 0 -  0 Þór/KA

„Mjög gott að fá þetta stig, bara frábært. Við unnum fyrir því. Þær létu okkur hlaupa og við vissum að þær myndu vera meira með boltann en við vorum skipulagðar og héldum því vel. Þetta gekk bara ágætlega."

„Við vorum að reyna að loka á Mayorinn, aðeins að láta hana hafa fyrir hlutunum og hún fékk alveg að gera það. Við náðum að jafnvel tvídekka eða þrídekka hana á tímabili en það losnaði kannski aðeins um aðrar á meðan. Það gekk vel, markmaðurinn góður, línan góð og miðjumennirnir frábærir."

Selfyssingar fengu líka tækifæri til þess að koma boltanum í netið en sóknarleikurinn hefur sennilega oft verið betri en í kvöld.

„Já, sendingarnar voru ekki nógu góðar á síðasta þriðjung en við fengum möguleika til þess að skapa okkur enn betri færi en við erum alltaf að reyna að leita að þessari úrslitasendingu staðin fyrir að fara 2-3 skref lengra."

Viðtalið við Alfreð má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner