Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 19. júní 2018 19:06
Ingólfur Páll Ingólfsson
Bernd Leno til Arsenal (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur staðfest að Bernd Leno, markvörður Bayer Leverkusen sé á leið til félagsins.

Leno er 26 ára gamall og hefur spilað yfir 230 leiki fyrir Leverkusen á rúmlega sjö tímabilum fyrir félagið. Enn á eftir að ganga frá smáatriðum í samningnum en bæði lið hafa þó staðfest félagsskiptin.

Unai Emery, knattspyrnustjóri félagsins var ánægður með félagsskiptin.

Við erum mjög ánægðir með að Bernd Leno muni ganga til liðs við okkur. Bernd er markmaður sem býr yfir miklum gæðum og reynslu,” Emery.

Hann hefur verið númer eitt hjá Leverkusen í Bundesligunni síðastliðinn sjö ár. Við erum allir spenntir að Bernd hafi valið Arsenal og hlökkum til þess að byrja að vinna með honum á undirbúningstímabilinu.”
Athugasemdir
banner
banner
banner