Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 19. júní 2018 06:00
Hafliði Breiðfjörð
HÚH brennimerkt hamborgarabrauð í búðum
Mynd: Gæðabakstur
Það er ekki á hverjum degi sem það gerist að Ísland kemst á heimsmeistaramótið í fótbolta. Strákarnir okkar spiluðu sinn fyrsta leik gegn Argentínu á laugardaginn og mæta svo Nígeríu á föstudaginn.

Gæðabakstur, Norðlenska og Krónan tóku höndum saman í að útbúa alvöru hamborgara sem eru tilbúnir á grillið. Því var brugðið á það ráð að brennimerkja hamborgarabrauðin með orðinu "HÚH" eins og svo frægt er orðið.

„Það rúlluðu nokkrar hugmyndir og áður en við vissum af voru markaðsdeildirnar komnar á fullt, og þá var eiginlega ekki aftur snúið," sagði Pétur.

Gæðabakstur fór því á stúfana og lét útbúa fyrir sig sérstakt járn sem nær sjóðandi hita og brennimerkir brauðin. Niðurstaðan var "HÚH” hamborgarabrauð.

„Við erum alltaf til í að prófa nýja hluti og fara aðeins aðrar leiðir en þessa hefðbundnu. Það lá í augum uppi að það þurfti að sjást einhvernvegin á hamborgaranum að hann væri HM borgari. Við gerðum svo ýmsar prufur með logsuðutæki og allskonar ævintýrum með tæknimanninum okkar” segir Pétur Pétursson framleiðslustjóri Gæðabaksturs.

Útkoman eru glæsileg brennimerkt hamborgarabrauð með orðinu HÚH. Fyrir hvern leik bíður Krónan upp á hamborgarapakka í þema þess liðs sem Ísland keppir á móti.
Athugasemdir
banner
banner