Tveir leikir voru á dagskrá í Inkasso deild kvenna í kvöld.
Keflavík vann þá góðan sigur á ÍA. Bæði mörk liðsins komu í síðari hálfleik en það voru þær Sveindís Jane Jónsdóttir og Natasha Moraa Anasi sem skoruðu mörk liðsins.
Í hinum leik kvöldsins mætti sameiginlegt lið Aftureldingar og Fram liði Þróttar Reykjavík.
Það var Þróttur Reykjavík sem fór með sigur af hólmi. Andrea Rut Bjarnadóttir kom Þrótti yfir á 26. mínútu. Elísabet Eir Hjálmarsdóttir tvöfaldaði forskot gestanna. Afturelding/Fram gáfust þó ekki upp og minnkuðu muninn á 70. mínútu með marki frá Stefaníu Valdimarsdóttur. Lengra komust þær þó ekki og Þróttur vann góðan sigur.
Fram/Afturelding 1 - 2 Þróttur R.
0-1 Andrea Rut Bjarnadóttir ('26)
0-2 Elísabet Eir Hjálmarsdóttir ('41)
1-2 Stefanía Valdimarsdóttir ('70)
Keflavík 2 - 0 ÍA
1-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('57 )
2-0 Natasha Moraa Anasi ('68 )
Athugasemdir