Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   þri 19. júní 2018 20:59
Ísak Máni Wíum
Kristján Guðmunds: Vona að hann sé kominn í gang
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Það var óþarfi að tapa vil ég meina, við eigum að verjast þessu horni, það var það lítið eftir að við áttum ekki að missa einbeitinguna á þeirri vinnu sem við áttum að skila inni í teignum."

Sagði Kristján Guðmundsson eftir 2-1 tap sinna manna gegn ÍBV fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  1 ÍBV

Eftir fínasta fyrri hálfleik datt liðið mikið til baka og sköpuðu fá færi.

„Við vorum aðeins of mikið til baka, þegar við vinnum boltann þá vorum við ekki að skila honum nógu vel upp völlinn á framherjana okkar eða miðjumennina og þar með færðumst við ósjálfrátt til baka. Við erum of fastir í varnarstöðunum og sækjum ekki nóg og það skilur á milli í þessum leik."

Shahab fékk loksins tækifærið aftur í byrjunarliði ÍBV og skoraði laglegt mark.

„Við erum búnir að vera að bíða eftir þessari stundu, að hann skori mark. Það tók mjög langan tíma í fyrra. Það var mikil vinna hjá þjálfurunum að koma honum í gang þá og núna erum við að standa í sömu vinnu að koma honum í gang aftur. Ég vona að hann sé kominn í gang."

Lið ÍBV er komið í smá HM pásu og síðan eiga þeir leik við Grindavík ásamt því að Evrópukeppnin er að skella á.

„Grindavík eru eitt af sterkustu liðunum í deildinni og við verðum einbeittir á það verkefni. Á morgun verður dregið í Evrópukeppninni það verður bara gaman."

Athugasemdir
banner
banner
banner