Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 19. júní 2018 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lucas Hernandez viðurkennir leikaraskap
Hernandez var alltaf liggjandi.
Hernandez var alltaf liggjandi.
Mynd: Getty Images
Lucas Hernandez, 22 ára varnarmaður Atletico Madrid, er með franska landsliðinu á HM.

Hann var í vinstri bakverði er Frakkar rétt mörðu Ástrali með tveimur mörkum gegn einu.

Hernandez vakti athygli fyrir miklar ýkjur og leikaraskap í leiknum en hann segir að þetta sé einfaldlega partur af leiknum.

„Ég er vanur því að gera þetta. Þegar ég finn fyrir snertingu fer ég niður," sagði Hernandez.

„Þetta kaupir dýrmætar sekúndur fyrir liðið. Þetta er partur af sýningunni, partur af leiknum, partur af mér."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner