„Það er búið að vera löng pása núna og við komum alltaf undan pásu smá ryðgaðar. En við rifum okkur í gang í hálfleik og sýndum karakter og náðum í þrjú stig í dag og erum sáttar með það." Sagði Selma Sól eftir 3-1 sigur á FH í kvöld.
Blikar virtust aðeins ryðgaðar eftir landsleikjar pásuna í fyrri hálfleik á meðan FH liðið leit mjög vel út vörðust vel og beittu flottum skyndisóknum
Blikar virtust aðeins ryðgaðar eftir landsleikjar pásuna í fyrri hálfleik á meðan FH liðið leit mjög vel út vörðust vel og beittu flottum skyndisóknum
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 1 FH
„Við bjuggumst við því að þær kæmu sterkar til leiks í dag þær voru saman í ferð á Ítalíu og búnar vera þjappa sér saman svo við bjuggumst við sterku FH liði í dag."
Breiðablik er komið á toppinn og næsti leikur er við Þór/KA fyrir norðan. Donni þjálfari Þór/KA lét hafa það eftir sér í viðtalið að þær myndu ekki tapa leik í sumar. Verða Blikar fyrsta liðið til að vinna þær?
„Það kemur bara í ljós á sunnudaginn."
Sagði Selma Sól að lokum glottandi og spennt fyrir stórleiknum gegn Þór/KA næstkomandi Sunnudag
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.
Athugasemdir