Íslandsmeistarar Vals mæta norsku meisturunum Rosenborg í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar en dregið var nú rétt í þessu.
Matthías Vilhjálmsson er á mála hjá Rosenborg sem og Nicklas Bendtner, fyrrum framherji Arsenal.
Bendtner hefur reyndar verið að glíma við meiðsli og af þeim sökum er hann ekki í HM hópi Dana. Hann gæti þó náð leikjunum gegn Val.
Andre Hansen, fyrrum markvörður KR, og Alexander Söderlund, fyrrum framherji FH, eru einnig í liði Rosenborg.

Arnór Ingvi Traustason og félagar í Malmö drógust gegn liði úr forkeppninni en það á eftir að skýrast hvaða lið það verður.
Leikirnir fara fram 10/11 og 17/18. júlí næstkomandi.
Athugasemdir