Ross Barkley, miðjumaður Everton, missir líklega af byrjun tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.
Barkley er meiddur í nára, en hann er búinn að fara í aðgerð.
Barkley, sem hefur verið orðaður við Tottenham, missti af æfingaferðum Everton til Tansaníu og til Hollands.
Barkley er meiddur í nára, en hann er búinn að fara í aðgerð.
Barkley, sem hefur verið orðaður við Tottenham, missti af æfingaferðum Everton til Tansaníu og til Hollands.
Barkley verður væntanlega klár eftir fjórar vikur.
Óvissa er með framtið Barkley, en hann á eitt ár eftir af samningi sínum hjá Everton. Ronald Koeman, stjóri Everton, hefur sagt að hann ætli að selja Barkley ef hann skrifar ekki undir í sumar.
Athugasemdir