Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mið 19. júlí 2017 10:54
Elvar Geir Magnússon
Ermelo, Hollandi
Elín Metta var niðurbrotin eftir leik í gær: Þetta er ekki auðvelt
Elín Metta eftir lokaflautið í gær.
Elín Metta eftir lokaflautið í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við vorum drullusvekktar í gær og auðvitað erum við smá svekktar enn. Nú þarf bara að hugsa eins og alvöru íþróttamaður og láta þetta ekki á sig fá," segir Elín Metta Jensen, leikmaður íslenska liðsins.

Elín kom inn sem varamaður í gær og fékk dæmda á sig vítaspyrnu skömmu síðar.

„Frá minum bæjardyrum séð er þetta ekki víti. Mér finnst hún bara bakka í mig og detta. Það var lítið sem ég gat gert í þeim aðstæðum. Mér fannst þetta klárlega ekki víti."

Amandine Henry, leikmaður Frakklands, nældi í vítaspyrnuna en hún og Dagný Brynjarsdóttir eru samherjar hjá Portland Thorns. Elín Metta segir að Dagný hafi sagt við sig eftir leik að Henry væri gjörn á að fiska.

„Það var augljóst hvað hún var að gera þarna. Þetta er reyndur leikmaður og kannski var hún svolítið klók."

Elín Metta var ansi niðurdreginn eftir leikinn og fór ekki í viðtöl að honum loknum. Hún var þó brött fyrir æfingu í morgun og spjallaði við alla fjölmiðla.

„Það eru miklar tilfinningar og auðvitað var ég hundsvekkt með þessi úrslit. Þetta er ekki auðvelt. En eins og stelpurnar segja þá erum við saman í þessu og ég ætla að horfa á það þannig," segir Elín Metta.

Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.

Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner