Búið er að færa leik FH og Leiknis Reykjavíkur í undanúrslitum Borgunarbikars karla um einn dag.
Þetta kemur fram á vefsíðu KSÍ.
„Vegna þáttöku FH í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu hefur eftirfarandi leik verið breytt:
Borgunarbikar karla - undanúrslit
FH - Leiknir Reykjavík
Var: Föstudaginn 28. júlí klukkan 19:15 á Kaplakrikavelli
Verður: Laugardaginn 29. júlí klukkan 14:00 á Kaplakrikavelli."

FH komst áfram í Meistaradeildinni í gær eftir 2-0 sigur á Víkingi Götu í Færeyjum. FH-ingar munu mæta annað hvort slóvenska liðinu Maribor eða bosníska liðinu Zrinjski í næstu umferð.
Athugasemdir