Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 19. júlí 2017 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ronaldo staðfestir að hann eigi von á sínu fjórða barni
Ronaldo hér með kærustu sinni og eldri syni.
Ronaldo hér með kærustu sinni og eldri syni.
Mynd: Getty Images
Fjölskylda Cristiano Ronaldo stækkar hratt þessa daganna.

Ronaldo hefur staðfest það að hann sé að fara að eignast barn með kærustu sinni, fyrirsætunni, Georgina Rodriguez, þar að segja ef marka má spænska blaðið El Mundo.

Aðspurður hvort hann væri ánægður með að annað barn væri á leiðinni, þá svaraði hann: „Já, mjög svo."

Þetta verður fjórða barn Ronaldo, hvorki meira né minna! Hann eignaðist á dögunum tvíbura, strák og stelpu, með hjálp staðgöngumóður, en fyrir á hann Cristiano Jr., sem er sjö ára.

Sögusagnir hafa verið á kreiki um að Georgina sé ólétt, en nú hefur Ronaldo víst staðfest það.

Ronaldo fór ekki með Real Madrid í æfingaferð til Bandaríkjanna eftir að hafa tekið þátt í Álfukeppninni. Hann er heima á Spáni að njóta tímans með fjölskyldu sinni.

Lovely moments😍

A post shared by Cristiano Ronaldo (@cristiano) on


Big family with love ❤❤❤❤❤❤❤❤❤❤

A post shared by Cristiano Ronaldo (@cristiano) on


Athugasemdir
banner
banner
banner