Topplið Leiknis missteig sig í kvöld þegar liðið gerði jafntefli við Selfoss 2-2 þrátt fyrir að leika manni fleiri stærstan hluta leiksins. Stigið gerir það þó að verkum að liðið færist nær Pepsi-deildinni.
Davíð Snorri Jónasson, annar þjálfara Leiknis, hafði þetta að segja eftir leikinn:
Davíð Snorri Jónasson, annar þjálfara Leiknis, hafði þetta að segja eftir leikinn:
„Við vissum það fyrir leikinn að við værum að fara að mæta góðu liði. Við undirbjuggum okkur vel og niðurstaðan var jafntefli. Það verður að hrósa Selfyssingum," sagði Davíð Snorri.
„Við vorum að gera þetta að mörgu leyti ágætlega. Við lendum undir og sýnum karakter. Í lokin vantaði betri ákvarðanatökur."
Gunnar Guðmundsson, þjálfari Selfoss, var ósáttur við stórar ákvarðanir dómarana í leiknum sem hann taldi hafa fallið með Leikni. Davíð er ósammála því að vítaspyrnudómurinn sem leiddi til þess að Leiknir komst í 2-1 hafi verið rangur.
„Gunni sér þetta með sínum augum en það er klárt mál að það er keyrt í bakið á Brynjari (Hlöðverssyni) í teignum. Boltinn er að fara á hann og hann dettur og það er víti. Varðandi markið sem við skoruðum á undan þá gátum við ekki betur séð en að boltinn væri inni."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir