Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 19. ágúst 2014 14:50
Elvar Geir Magnússon
Fótbolti.net gefur á kvennalandsleikinn gegn Danmörku
Frá æfingu kvennalandsliðsins í morgun.
Frá æfingu kvennalandsliðsins í morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net gefur lesendum sínum frímiða á landsleik Íslands og Danmerkur í kvennaflokki sem fram fer á Laugardalsvelli á fimmtudagskvöld.

Til að vinna miða þarftu að vera vinur Fótbolta.net á Facebook og skrifa ummæli við þráðinn þar sem við biðjum lesendur um að nefna sinn uppáhalds leikmann í liðinu.

Ef Fótbolti.net gefur "like" við þitt innlegg getur þú komið og sótt miða fyrir tvo á höfuðstöðvar Fótbolta.net á Krókhálsi 6. Keyrt er inn sundið og þar er hurð merkt Fótbolta.net.

Hægt er að sækja miðana á morgun miðvikudag milli 11 og 17.

Um er að ræða gríðarlega mikilvægan leik. Með sigri á Ísland góða möguleika á sæti í umspili fyrir lokakeppni HM 2015, sem fram fer í Kanada næsta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner