Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 19. ágúst 2014 10:05
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Vargas og Fer á leið til QPR
Leroy Fer.
Leroy Fer.
Mynd: Getty Images
Harry Redknapp, stjóri QPR, hefur nóg að gera í dag en hann er að landa tveimur nýjum leikmönnum.

Harry er að krækja í hollenska miðjumanninn Leroy Fer frá Norwich en hann er í læknisskoðun hjá QPR.

Fer var í eldlínunni á HM í sumar en hann vill fara frá Norwich eftir fall liðsins úr ensku úrvalsdeildinni.

QPR er einnig að krækja í miðjumanninn Eduardo Vargas á láni frá Napoli.

Vargas spilaði á HM í sumar líkt og Fer en hann skoraði meðal annars laglegt mark þegar Síle sigraði Spán.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner