Björgvin Stefán Pétursson, fyrirliði Leiknis Fáskrúðsfjarðar var að vonum ósáttur með leik síns liðs þegar það steinlág 4-1 gegn Fylki í Árbænum í dag.
„Nei, bara hundlélegt, við vorum bara lélegir og erum hundsvekktir og sárir með okkar frammistöðu okkar hér í dag." sagði Björgvin.
Leiknir hafa mátt þola tap í síðustu níu leikjum liðsins í Inkasso-deildinni í sumar og er liðið níu stigum frá öruggu sæti í deildinni. Aðspurður út í hvernig hann lyti á framhaldið hafði Björgvin þetta að segja,
„Ég meina, þetta er ekki bjart sko, við verðum alveg að vera hreinskilnir með það. Við erum eins neðarlega og við getum verið og búnir að vera eins lélegir og við getum verið, núna níu leiki í röð. Það er ekki bjart framhaldið en við náðum kraftaverki í fyrra og við trúum bara á kraftaverk aftur."
„Við erum að gefa mörk endalaust á okkur, ef við erum að gefa liðum eins og Fylki færi á að skora mörk á okkur þá skora þeir mörk á okkur. Það er bara ekki flóknara en það." sagði Björgvin svekktur.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.

Athugasemdir