Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 19. ágúst 2017 20:47
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ítalía: Napoli sigraði Hellas Verona örugglega
Milik skoraði fyrir Napoli í kvöld.
Milik skoraði fyrir Napoli í kvöld.
Mynd: Getty Images
Hellas Verona 1 - 3 Napoli
0-1 Samuel Souprayen ('32 , sjálfsmark)
0-2 Arkadiusz Milik ('39 )
0-3 Faouzi Ghoulam ('62 )
1-3 Giampaolo Pazzini ('83 , víti)
Rautt spjald:Elseid Hysaj, Napoli ('83)

Napoli hafði betur gegn Hellas Verona í fyrstu umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Samuel Souprayen varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark og kom þar með Napoli yfir á 32. mínútu.

Stuttu síðar skoraði Arkadiusz Milik og kom Napoli í 0-2, og þannig var staðan í hálfleik.

Faouzi Ghoulam skoraði þriðja mark Napoli á 62. mínútu og það reyndist lokamark gestanna í leiknum.

Heimamenn settu hins vegar eitt mark undir lok leiksins úr vítaspyrnu og niðurstaðan 1-3 útisigur Napoli.
Athugasemdir
banner
banner
banner