Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. ágúst 2017 17:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp um Coutinho: Það hefur ekkert breyst
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp var að sjálfsögðu spurður út í Brasilíumanninn Philippe Coutinho þegar hann svaraði spurningum blaðamanna eftir 1-0 sigur á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Það hefur ekkert breyst. Starf mitt felst fyrst og fremst í því að þjálfa leikmennina sem eru til staðar. Þetta er ekki mín ákvörðun. Það er ekki gott fyrir okkur að spila án leikmanns eins og Coutinho, en það hefur ekkert breyst. Þetta er ákvörðun félagsins, þetta er ekki undir mér komið," sagði Klopp aðspurður út í Coutinho.

Mikil umræða hefur verið um Coutinho í sumar. Barcelona vill fá hann í sínar raðir, en Liverpool hafnaði síðast tilboði í hann í gær. Talið er að það tilboð hafi hljóðað upp á 119 milljónir punda.

Coutinho spilaði ekki með Liverpool í dag, en hann er sagður meiddur. Hann missti líka af fyrsta leik tímabilsins.
Athugasemdir
banner
banner