„Þetta eru góð úrslit fyrir okkur," sagði Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, eftir 4-0 sigur á Swansea í dag.
United byrjar ensku úrvalsdeildina gríðarlega vel. Þeir unnu West Ham 4-0 í fyrsta leik og unnu síðan 4-0 aftur í dag. Það stefnir í gott tímabil hjá Pogba sem hefur skorað í báðum leikjunum hingað til.

„Það er gott að halda aftur hreinu. Við viljum halda svona áfram," sagði Pogba þegar hann ræddi við fréttamenn eftir leik.
„Við höfum meira sjálfsraust en á síðasta tímabili. Við þekkjum hvorn annan betur. Við vinnum fyrir liðið."
Henrikh Mkhitaryan hefur lagt upp fjögur mörk í fyrstu tveimur leikjunum. Hann mætti í viðtal með Pogba.
„Þetta var erfiður leikur, sérstaklega í fyrri hálfleiknum. Við sýndum ástríðu, við gerðum það sem við þurftum að gera. Seinni hálfleikurinn var auðveldari fyrir okkur," sagði Mkhitaryan.
...then @PaulPogba got in on the act - he's scored in four of his last five competitive games for #MUFC... pic.twitter.com/3xMeoMGo3F
— Manchester United (@ManUtd) August 19, 2017
Athugasemdir