Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. ágúst 2017 21:05
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Sviss: Guðlaugur Victor lék allan leikinn í jafntefli
Guðlaugur Victor er á toppnum í Sviss.
Guðlaugur Victor er á toppnum í Sviss.
Mynd: Getty Images
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn í dag þegar lið hans Zürich mætti Young Boys í toppslag í svissnensku deildinni.

Niðurstaðan í leik Zürich og Young Boys var markalaust jafntefli.

Guðlaugur Victor og félagar eru í 1. sæti deildarinnar með 11 stig, stigi meira en Young Boys.

Deildin í Sviss hófst í júlí og þessi leikur var fimmti leikur liðanna í deildinni á þessu tímabili.

Guðlaugur Victor er á sínu fyrsta tímabili í Sviss en hann kom til Zürich frá Esbjerg í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner