Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. ágúst 2017 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Winston Reid skrifar undir nýjan sex ára samning
Reid er greinilega ánægður hjá West Ham.
Reid er greinilega ánægður hjá West Ham.
Mynd: Getty Images
Winston Reid, varnarmaðurinn sterki, hefur skrifað undir nýjan langtíma samning við West Ham.

Reid kom til West Ham frá danska liðinu Midtjylland árið 2010 og hefur síðan þá leikið 204 leiki fyrir liðið.

Reid átti fjögur ár eftir af samningi sínum, en West Ham tekur enga áhættu. Þeir hafa gert nýjan samning við hann sem gildir til 2023!

„Ég er mjög ánægður," sagði Reid við heimasíðu West Ham.

„Ég er ánægður að búið sé að ganga frá þessu og nú hlakkar mér til framhaldsins. Ég nýt þess að vera hérna og fjölskyldan mín gerir það líka," sagði Reid enn fremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner