Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. september 2014 19:43
Brynjar Ingi Erluson
Ancelotti: Mér er sama um samband Mourinho og Ronaldo
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid á Spáni, segist ekki hafa áhuga á sambandi Jose Mourinho og Cristiano Ronaldo.

Mourinho, sem stýrir nú Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, greindi frá því á dögunum að hann og Ronaldo tali ekki saman eftir að Mourinho hætti með Madrídinga.

Mikill kuldi var á milli Mourinho og Ronaldo er þeir voru saman hjá Real Madrid en Ancelotti vildi þó lítið tjá sig um málið.

,,Mourinho er frábær þjálfari sem getur þjálfað hvar sem er. Ég veit ekki hvernig samband hans við Ronaldo er og mér er eiginlega alveg sama. Þetta er þeirra á milli og hefur ekkert með Real Madrid að gera," sagði Ancelotti.
Athugasemdir
banner
banner
banner