Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal mun leggja fram tilboð í franska miðjumanninn Adrien Rabiot sem er á mála hjá Paris Saint-Germain í Frakklandi en Mirror greinir frá þessu í kvöld.
Rabiot, sem er 19 ára gamall, er talinn einn efnilegasti miðjumaður heims um þessar mundir en hann var nálægt því að ganga til liðs við AS Roma á Ítalíu í sumarglugganum.
Hann komst þó ekki að samkomulagi við Roma en Arsene Wenger, stjóri Arsenal, mun nú leggja fram tilboð í franska leikmanninn.
Hann ætlar að fá hann í janúarglugganum en Rabiot spilaði 25 leiki með PSG í frönsku deildinni á síðustu leiktíð þrátt fyrir ungan aldur.
Athugasemdir