Franski varnarmaðurinn Mathieu Debuchy hjá Arsenal var borinn af velli á börum í 2-2 jafnteflisleiknum gegn Manchester City síðustu helgi.
Eftir að hafa farið í skoðun kom í ljós að liðbönd á ökkla eru sködduð og segir Arsene Wenger, stjóri Arsenal, að Debuchy verði frá í sex vikur hið minnsta.
Eftir að hafa farið í skoðun kom í ljós að liðbönd á ökkla eru sködduð og segir Arsene Wenger, stjóri Arsenal, að Debuchy verði frá í sex vikur hið minnsta.
Debuchy kom til Arsenal frá Newcastle í sumar.
Hinn 19 ára Calum Chambers mun líklega fylla hans skarð gegn Aston Villa á morgun en hann kom frá Southampton í júlí.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir