Yolanthe Sneijder-Cabau, eiginkona Wesley Sneijder, er stödd á Íslandi til að leika í kvikmynd en nutiminn.is greinir frá þessu.
Cabau er leikkona, hönnuður og mannréttindafrömuður en hún hefur áður leikið í kvikmyndum á borð við Pan & Gain, með Mark Wahlberg og The Rock og Kidnapping Fred
Heineken, sem skartar Sam Worthington í aðalhlutverki og verður frumsýnd á næsta ári.
Ekki er ljóst við hvaða kvikmynd Cabau er að leika í hér á landi en hún sagði á Twitter fyrr í vikunni að hún myndi fara í þrjár vikur til að sinna verkefninu.
Cabau verður því væntanlega nýfarinn frá Íslandi þegar Sneijder og félagar í hollenska landsliðinu mæta á Laugardalsvöll mánudaginn 13. október næstkomandi.
Athugasemdir