banner
   sun 19. október 2014 16:30
Grímur Már Þórólfsson
Bale tæpur fyrir leikinn gegn Liverpool
Spurning hvort Bale verði tilbúinn gegn Liverpool
Spurning hvort Bale verði tilbúinn gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid segir að hann muni ekki taka neina áhættu með Gareth Bale í leiknum gegn Liverpool á miðvikudaginn.

Bale var allan tímann á varamannabekknum í 5-0 sigrinum á Levante í gær en hann meiddist með Wales.

„Honum leið ekki nægilega vel svo við ákváðum að taka enga áhættu með hann og við munum fylgjast með honum næstu daga og svo meta hvort hann verði tilbúinn gegn Liverpool.“

Ancelotti var einnig án Karim Benzema og Raphael Varane en þeir voru báðir veikir. Þá er Sergio Ramos einnig meiddur.

Þá fór Luka Modric meiddur útaf þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum gegn Levante.

„Þetta var bara högg, hann (Modric) mun ekki vera í neinum vandræðum með að spila næsta leik. Við höfum núna nokkra daga til að meta ástandið á Bale, Benzema, Varane og Ramos.“

„Þetta var erfiður leikur til að undirbúa fyrir, en við spiluðum mjög vel og náðum úrslitunum. Núna þurfum við, fyrst að sjá hverjir munu geta spilað og undirbúa okkur fyrir leikinn á miðvikudaginn“
, sagði Ancelotti.
Athugasemdir
banner
banner
banner