Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. október 2014 18:11
Elvar Geir Magnússon
Belgía: Mikilvægur sigur Ólafs Inga og félaga
Landslisðmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason.
Landslisðmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveimur af þremur leikjum dagsins í belgísku úrvalsdeildinni er lokið.

Ólafur Ingi Skúlason lék allan tímann fyrir Zulte-Waregem sem vann 2-1 útisigur gegn Standard Liege.

Ólafur fékk gult spjald í leiknum en þetta var ansi mikilvægur sigur fyrir Zulte-Waregem sem er þó enn í botnsætinu, nú með níu stig að loknum ellefu umferðum. Tvö stig eru upp í öruggt sæti.

Club Brugge vann 3-1 útisigur gegn Lokeren í hinum leiknum en Club Brugge er í öðru sæti, þremur stigum á eftir toplliði Anderlecht.
Athugasemdir
banner
banner
banner