Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. október 2014 12:30
Grímur Már Þórólfsson
Heimild: espn 
Lampard missir af leiknum gegn CSKA
Frank Lampard verður fjarri góðu gamni gegn CSKA
Frank Lampard verður fjarri góðu gamni gegn CSKA
Mynd: Getty Images
Frank Lampard mun missa af leik Manchester City gegn CSKA Moskvu í meistardeildinni á þriðjudaginn, vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í leiknum gegn Tottenham í gær.

Það er þó ekki staðfest hversu lengi Lampard verður frá en Pellegrini hefur þó staðfest að hann ferðist ekki til Moskvu.

Þessi 36 ára gamli leikmaður skoraði einmitt í úrslitaleik meistaradeildinnar gegn Man Utd árið 2008 í Moskvu.

Lampard var valinn leikmaður mánaðarins hjá Man City í september en hann hefur skorað fjögur mörk fyrir félagið.

Pellegrini hefur þó leikmenn á borð við Yaya Toure og Fernandinho til að setja í staðinn fyrir Lampard en þeir komu báðir inná sem varamenn gegn Tottenham í gær.

City eru þó einnig án Samir Nasri, en hann ætti að koma aftur til æfinga í vikunni.

Liðið þarf nauðsynlega á sigri að halda gegn CSKA en liðið er með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina. Þeir byrjuðu á 1-0 tapi gegn Bayern Munich og gerðu svo 1-1 jafntefli við Roma.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner