Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. október 2014 20:08
Alexander Freyr Tamimi
Noregur: Viðar Örn skoraði í tapi Vålerenga
Viðar skoraði.
Viðar skoraði.
Mynd: Kenneth Myhre - Kennethmyhre.net
Viðar Örn Kjartansson var á skotskónum í ótrúlegu tapi Vålerenga gegn Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Viðar Örn skoraði sitt 25. mark á tímabilinu þegar hann kom Våleranga í 1-0 á 10. mínútu og tvöfaldaði Niklas Gunnarsson forystu gestanna níu mínútum síðar.

Rosenborg gafst hins vegar ekki upp og fyrir leikhlé hafði liðið jafnað metin.

Tomas Malec tryggði svo Rosenborg sigur með marki á 75. mínútu og lokatölur 3-2.

Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn í vörninni hjá Rosenborg.
Athugasemdir
banner
banner