Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 19. október 2017 16:16
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Arsenal í Serbíu: Níu breytingar
Fylgst með í úrslitaþjónustu á forsíðu
Reiss Nelson, 17 ára leikmaður Arsenal.
Reiss Nelson, 17 ára leikmaður Arsenal.
Mynd: Getty Images
Af byrjunarliðsleikmönnum Arsenal gegn Rauðu stjörnunni eru það bara Petr Cech og Mohamed Elneny sem byrjuðu síðasta deildarleik, tapleikinn gegn Watford.

Mathieu Debuchy, Jack Wilshere og Reiss Nelson eru meðal byrjunarliðsmanna. Nelson er 17 ára gamall sóknarleikmaður sem leikið hefur fyrir yngri landslið Englands.

Byrjunarlið Arsenal: Cech; Debuchy, Holding, Elneny; Maitland-Niles, Coquelin, Willock, Wilshere, Nelson; Walcott, Giroud.

Leikurinn hefst klukkan 17 en hann er í þriðju umferð riðlakeppninnar.

Arsenal hefu runnið báða leiki sína, Rauða stjarnan er í öðru sæti með fjögur stig í riðlinum. Í riðlinum eru einnig BATE (1 stig) og Köln (0 stig) en þau mætast innbyrðis í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner