Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 19. október 2017 18:08
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Everton: Gylfi á bekknum
Fylgst með í úrslitaþjónustu á forsíðu
Gylfi er á bekknum.
Gylfi er á bekknum.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson er meðal varamanna hjá Everton sem mætir Lyon í Evrópudeildinni klukkan 19:05.

Wayne Rooney er ekki í leikmannahópi Everton en liðið hefur farið illa af stað á tímabilinu og heitt er undir Ronald Koeman knattspyrnustjóra.

Everton gerir fimm breytingar á byrjunarliði sínu og Kevin Mirallas fær sjaldgæfan byrjunarliðsleik.

Byrjunarlið Everton: Pickford; Holgate, Keane, Williams, Martina; Davies, Schneiderlin; Mirallas, Klaassen, Vlasic; Calvert-Lewin.

Everton er aðeins með eitt stig eftir tvo leiki í E-riðli. Lyon er með tvö stig eins og Apollon Limassol. Á toppi riðilsins er ítalska liðið Atalanta.

Sjá einnig:
Gylfi hreinskilinn - Ekki sáttur við byrjun sína hjá Everton



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner