Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 19. desember 2014 07:00
Daníel Freyr Jónsson
Áfall fyrir Hull - Dawson ekkert með um jólin
Michael Dawson kom til Hull frá Tottenham í sumar.
Michael Dawson kom til Hull frá Tottenham í sumar.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Michael Dawson er með rifinn vöðva í læri og mun ekkert spila með Hull næstu vikurnar af þeim sökum

Þetta staðfesti Steve Bruce, stjóri liðsins, á blaðamannafundi í gær.

Dawson meiddist í 2-0 ósigri Hull gegn Chelsea um síðustu helgi, en hann hefur þegar setið heilan mánuð utan vallar á tímabilinu vegna ökklameiðsla.

Er þetta talsvert áfall fyrir Hull þar sem liðinu hefur gengið skelfilega á tímabilinu og einungis unnið tvo af 16 leikjum sínum í úrvalsdeildinni. Framundan er síðan jólavertíðin þar sem Dawson verður sárt saknað.
Athugasemdir
banner
banner