Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 19. desember 2014 09:30
Elvar Geir Magnússon
Ari Freyr og West Ham umræða í útvarpinu á laugardag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Ari Freyr Skúlason verður gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu FM 97,7 á laugardag milli 12 og 14 eins og venjan er.

Ari hefur fest sig vel í sessi í íslenska landsliðinu auk þess sem hann er fyrirliði danska úrvalsdeildarliðsins OB.

Í fyrri hluta þáttarins verður enska hringborðið á dagskránni en Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri Skinfaxa, er gestur. Hann er mikill stuðningsmaður West Ham.

Verið með okkur í síðasta þættinum fyrir jól!

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner