Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. desember 2014 17:00
Elvar Geir Magnússon
Di Maria gæti verið á bekknum á morgun
Angel Di Maria.
Angel Di Maria.
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria er farinn að æfa af krafti eftir meiðsli og gæti verið í leikmannahópi Manchester United sem mætir Aston Villa á Villa Park á morgun.

Louis van Gaal hélt fréttamannafund í dag þar sem hann staðfesti þetta.

Sá hollenski segir að Di Maria sé ekki klár í að byrja en verði mögulega á varamannabekknum.

United er í þriðja sæti eftir sex sigurleiki í röð en Van Gaal heldur þó áfram að tala um að hann sé ekki sáttur við frammistöðuna, hún eigi að vera mun betri og liðið eigi að sýna meiri yfirburði.

„Sem dæmi vil ég sjá fleiri leiki eins og gegn Hull. Þar vorum við með leikinn í okkar höndum allar 90 mínúturnar," segir Van Gaal.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner