Luis Enrique, þjálfari Barcelona á Spáni, segir að þetta ár hafi verið honum afar gott, svo gott að hann líkir því við Disneyland.
Barcelona leikur sinn síðasta leik á árinu á laugardag en Enrique tók við liðinu í sumar eftir að Gerardo Martino var látinn fara frá félaginu.
Hann lék í átta ár með Barcelona áður en hann tók við B-liðinu. Hann stýrði því í þrjú ár áður en hann tók við Roma. Hann fór þaðan til Celta áður en hann var kallaður aftur til Barcelona.
,,Þetta hefur verið frábært ár fyrir mig. Ég var fyrst hjá Celta og svo kom ég heim til Barcelona, sem er eins og að koma í himnaríki. Þetta er svona eins og Disneyland," sagði Enrique.
Athugasemdir