Mainz 1 - 2 Bayern
1-0 Elkin Soto ('21 )
1-1 Bastian Schweinsteiger ('24 )
1-2 Arjen Robben ('90 )
1-0 Elkin Soto ('21 )
1-1 Bastian Schweinsteiger ('24 )
1-2 Arjen Robben ('90 )
Þýska meistaraliðið Bayern München ákvað að skella sér í í vetrarfrí með því að leggja Mainz að velli með tveimur mörkum gegn einu en sigurmarkið kom undir lok leiksins.
Elkin Soto kom heimamönnum í Mainz yfir á 21. mínútu er Elkin Soto klobbaði Manuel Neuer og kom boltanum í netið. Neuer er þá mennskur eftir allt saman.
Bastian Schweinsteiger var ekki lengi að jafna fyrir Bayern en það kom þremur mínútum síðar. Hann ákvað þá að klína boltanum úr aukaspyrnu upp í samskeytin, gullfallegt mark hjá Þjóðverjanum.
Það var í verkahring Arjen Robben að skora sigurmarkið á 90. mínútu en það kom eftir fyrirgjöf og átti Robben ekki í vandræðum með að koma boltanum í netið.
Lokatölur 1-2 fyrir Bayern sem er í efsta sæti deildarinnar með 45 stig, fjórtán stigum á undan næsta liði.
Athugasemdir