Aspas skoraði fyrsta mark leiksins í góðum sigri í bikarnum. Seinni leikurinn verður á heimavelli Celta.
Real Madrid tapaði óvænt á heimavelli þegar liðið mættir Celta Vigo í spænska Konungsbikarnum á miðvikudaginn.
Iago Aspas og Jonny skoruðu mörk Celta á meðan Marcelo gerði eina mark Real í leiknum.
Iago Aspas og Jonny skoruðu mörk Celta á meðan Marcelo gerði eina mark Real í leiknum.
Aspas og Sergio Ramos áttust nokkrum sinnum við í leiknum og var Ramos orðinn afar pirraður á samlanda sínum og samherja í spænska landsliðinu, svo hann hrækti á hann í hita leiksins.
„Ég tók ekki einu sinni eftir því að hann hrækti á mig. Ég sá það bara eftir að einhver sendi mér myndbandið," sagði Aspas.
„Þetta eru hlutir sem gerast á vellinum, en þeir verða eftir á vellinum. Ég tók ekki einu sinni eftir þessu."
Athugasemdir