Heimild: Goal
Antonio Conte, stjóri Chelsea, gæti leyft markverðinum Asmir Begovic að fara í félagsskiptaglugganum sem nú er í gangi.
Begovic hefur gegn hlutverki vararmarkvarðar Chelsea frá því hann var keyptur frá Stoke sumarið 2015, en Thibaut Courtois er aðalmarkvörður Chelsea.
Begovic hefur gegn hlutverki vararmarkvarðar Chelsea frá því hann var keyptur frá Stoke sumarið 2015, en Thibaut Courtois er aðalmarkvörður Chelsea.
Samkvæmt fréttum frá Englandi var 10 milljón punda tilboði í Begovic frá Bournemouth hafnað, en Conte segist vera með tilboð til skoðunar.
„Asmir er mikilvægur leikmaður, innan sem utan vallar, hann veit það," sagði Conte við blaðamenn í dag.
„Við erum með tilboð í hann og við erum að skoða það. Það er mikilvægt fyrir mig og félagið að finna réttu lausnina í þessu. Áður en hann fer annað, þá er mikilvægt að finna réttu lausnina í þessu máli."
Athugasemdir