Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 20. janúar 2017 20:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: ESPN 
Di Maria ætlar ekki til Kína - Vill vinna Meistaradeildina
Di Maria hefur ekki áhuga á að fara til Kína.
Di Maria hefur ekki áhuga á að fara til Kína.
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria, leikmaður Paris Saint-Germain, hefur engan áhuga á því að fara yfir í kínverska boltann þar sem peningarnir eru ógurlegir.

Di Maria hefur það eflaust gott í París, en þrátt fyrir það hefur hann verið orðaður við kínverska boltann. Nokkrir af bestu fótboltamenn heims hafa fært sig yfir til Kína á undanförnum dögum, en það lítur ekki út fyrir að Di Maria verði sá næsti í röðinni.

„Ég er mjög ánægður hérna og ég á tvö ár eftir af samningi mínum," sagði Di Maria við ESPN.

„Allir hafa mismunandi hugsunarhátt. Fólk getur haft vilja fyrir því að fara til Kína og spila fótbolta. Það er augljóst hvað það er mikill peningur þarna og það getur heillað einhverja."

„Það er hins vegar ekki þannig hjá mér, ég vil frekar vera hér áfram. Ég vil ná því markmiði, sem ég setti sjálfum mér, að fara til Parísar og vinna Meistaradeildina."
Athugasemdir
banner
banner
banner